Forsíða  |  Jökulfirðir  |  Saga byggðar  |  Saga Kollsár  Saga ættar Uppbygging  |  Ferðalög  |  Um vefinn


Um Kollsárvefinn
Þessi vefur þjónar því hlutverki einu að gefa höfundi útrás, minna ætt hans á uppruna sinn og halda til haga sögu staðar og ábúenda.

Og  minna á gildi óspilltrar náttúru.

Höfundur er fæddur á Ísafirði árið 1949. Við illan leik að vísu því að ákafur læknir skar keisaraskurð með slíkum látum að sauma þurfti drenginn saman eftir fæðingu. Feginn er hann að hnífur læknis skyldi ekki rata þvert um háls. Og sögur herma að reynt hafi verið að pranga ómálga nýburanum inn á aðra sængurkonu í kjölfarið. Lauk þar viðskiptum höfundar við sjúkrastofnun staðarins. Höfundur ólst upp á Kollsá fram á áttunda aldursár. Þá brugðu Kollsárhjónin búi og fluttu með börn og buru til Ísafjarðar. Höfundur lauk uppvexti að Brunngötu 12B og unglingsárunum var eytt að Urðarvegi 11. Fyrra húsið er horfið og er nú bílastæði á lóðinni, en síðara húsið stendur enn og heitir frá fornu fari Lækjamót.

 



Menntun sína og visku hlaut höfundur að mestu í gamla barnaskólanum á Ísafirði og síðar Gagnfræðaskólanum. En er jafnframt sannfærður um að góð lestrarkennsla í föðurhúsum hafi gert gæfumuninn.

Spúsa höfundar er Ásta Baldursdóttir. Hún er fædd og uppalin í Keflavík en foreldrar eru frá Austfjörðum.

Samkvæmt Íslendingabók eru höfundur og tengdamóðir hans skyld í tíunda lið sem þykir frekar fjarskylt, og tengslin við tengdaföður teygja sig í ellefta lið. Að meðaltali munu Íslendingar skyldir í sjöunda lið. En áar höfundar eru ættaðir frá Hornströndum sem voru alltaf sérlega afskekktar og samgöngur við aðra landshluta fremur litlar. Og mannfólkið sérlundað.

Þau hjónin búa í Laugarneshverfi í Reykjavík.Steinsnar frá heimili þeirra stóð til skamms tíma hús sem nefnt var Steinhólar en svo vill til að Kollsárbræður eiga samnefnda jörð í Jökulfjörðum sem húsið var nefnt eftir. Höfundur á tvo uppkomna syni, Guðmund Jakob, fæddan 1969 og Þröst Má, fæddan 1979. Sá fyrrnefndi er búsettur á eyrinni á Ísafirði en sá síðarnefndi Reykjavík. Barnabörnin eru tvö, þær Arnbjörg Helga, fædd 1995, og Sóley Anna, fædd 1999, báðar Guðmundsdætur.


© 2008 Svanberg K. Jakobsson. svanberg (hjá) kollsa.net. Síðast breytt 18. apríl 2008