|
Bærinn
Kollsá í Jökulfjörðum er ystur bæja á
Sveitinni sem svo var kölluð.
Hann stendur austur undir Staðarhlíð á marbakka undir grýttum hjöllum. Utan við
túnfótinn fellur Kollsá sem kemur úr dölunum er skerast inn í
Hrafnabjörg. Austur frá túninu er láglendi Sveitarinnar sem hallar
ofan frá heiðum og niður að sjó og nær inn að Dynjandisá
sunnanvert við Leirufjörð. Fremst á myndinni
er Kollsá, síðan Steinhólar og Höfðaströnd, og í fjarska glittir
í Deildará.
Leirufjörður er í aftast á myndinni og yfir trónir Drangajökull.
Landamerki
Kollsár og Höfðastrandar
eru nokkru innan við Kollsá
þar sem
heitir Gunnsteinsvog
að neðan og sjónhending í Hrafnaklett að ofan,
stóran klettahnúkur norðan í Hrafnabjörgum. Landamerki milli
Staðar og og Kollsár eru Kálfshamar að neðan skammt innan við
Staðareyrar og sjónhending í Hildarhaug. Undir Kollsá
liggja
um tveir fimmtu hlutar
Staðarhlíðar.
(Heimild:
Guðrún Ása Grímsdóttir.
Grunnvíkingabók) |