Forsíða  |  Jökulfirðir  |  Saga byggðar  |  Saga Kollsár  Saga ættar Uppbygging  |  Ferðalög  |  Um vefinn

Bærinn Kollsá í Jökulfjörðum er ystur bæja á Sveitinni sem svo var kölluð. Hann stendur austur undir Staðarhlíð á marbakka undir grýttum hjöllum. Utan við túnfótinn fellur Kollsá sem kemur úr dölunum er skerast inn í Hrafnabjörg. Austur frá túninu er láglendi Sveitarinnar sem hallar ofan frá heiðum og niður að sjó og nær inn að Dynjandisá sunnanvert við Leirufjörð. Fremst á myndinni er Kollsá, síðan Steinhólar og Höfðaströnd, og í fjarska glittir í Deildará. Leirufjörður er í aftast á myndinni og yfir trónir Drangajökull.

 

Landamerki
Kollsár og Höfðastrandar
eru nokkru innan við Kollsá
þar sem heitir Gunnsteinsvog
að neðan og sjónhending í Hrafnaklett að ofan, stóran klettahnúkur norðan í Hrafnabjörgum. Landamerki milli Staðar og og Kollsár eru Kálfshamar að neðan skammt innan við Staðareyrar og sjónhending í Hildarhaug. Undir Kollsá liggja
um tveir fimmtu hlutar
Staðarhlíðar.

(Heimild: Guðrún Ása Grímsdóttir.
Grunnvíkingabók
)


Vefurinn er helgaður sögu Kollsár og minningum höfundar sem sleit þar sínum fyrstu gúmmískóm.
© 2008 Svanberg K. Jakobsson. svanberg (hjá) kollsa.net

Síðast breytt 18. apríl 2008